Galaxy Book6 Pro

Tab S10 Lite

fylgir með í kaupauka

Kaupauki til:

10/05/2026

Skráningu lýkur:

25/05/2026

Skráðu og fáðu í kaupauka: Tab S10 Lite

Skráning

Athugið

Síðasti kaupdagur: 10/05/2026

Síðasti skráningardagur: 25/05/2026

Skráningarferli

Vinsamlegast athugið að ekki er hægt að sækja/senda kaupaukann fyrr en fullgild skráning hefur verið staðfest í tölvupósti.

Svona finnur þú IMEI-númer eða raðnúmer tækis.
This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.

Létt, öflug og snjöll fartölva með gervigreind

Uppgötvaðu nýja kynslóð fartölva með Galaxy Book6 Pro. Hún er búin nýjustu gerð Intel® Core™ Ultra örgjörva með öflugri innbyggðri gervigreind, sem tryggir afköst í fremstu röð – hvort sem þú ert að vinna í flóknum verkefnum, búa til skapandi efni eða streyma í hárri upplausn.

Dynamic AMOLED 2X snertiskjárinn, sem fáanlegur er í bæði 14″ og 16″ stærðum, skilar kristaltærri mynd með líflegum litum og einstakri skerpu sem aðlagast umhverfinu – fullkominn fyrir jafnt faglega vinnu sem hágæða afþreyingu. Þrátt fyrir aukinn kraft er vélin áfram einstaklega þunn og létt, hönnuð úr úrvals áli sem hentar fullkomlega fyrir fólk á ferðinni.

Allt þetta kemur með frábærri rafhlöðuendingu sem endist allan vinnudaginn, ásamt nýjustu tengimöguleikum á borð við Wi-Fi 7 og Thunderbolt 4, sem tryggja hámarkshraða við öll tækifæri.

Grafít
Litir í boði fyrir Book6 Pro

Veldu gæði, veldu Galaxy

Frábær snertiskjár

Gleymdu þér í 3K (2880×1800) upplausninni og 120Hz endurnýjunartíðni sem gerir alla hreyfingu á Dynamic AMOLED 2X skjánum einstaklega mjúka og nákvæma. Hvort sem þú velur 14″ eða 16″ útgáfuna fær hvert einasta smáatriði líf með dýpri svörtum tónum og óviðjafnanlegri litadýrð. Með háþróaðri blágeislavörn getur þú unnið eða skemmt þér klukkustundum saman án þess að þreyta augun. Corning® Gorilla® Glass með DX tryggir að glampavörnin er í hæsta gæðaflokki, á meðan uppfærð Vision Booster tækni greinir birtustig umhverfisins og fínstillir skjáinn svo þú njótir fullkominnar myndar, jafnt innandyra sem úti í sólskininu.

14"/16"

Dynamic AMOLED 2X snertiskjár

3K (2880x1800)

Hágæða upplausn

120Hz

Endurnýjunartíðni

120% DCI-P3

Litamagn

Þunn og létt

Tölvan ræður við þyngstu verkefnin án þess að íþyngja þér… bókstaflega. Þunn og létt hönnun svo tölvan er fyrirferðalítil og hentar vel fyrir þá sem eru mikið á ferðinni.
14"
11,6
MM
1,23
KG
16"
11,9
MM
1,59
KG

Rafhlaða

Allt til þess að áorka meiru. Stór rafhlaða sem endist í allt að 30 klst og 65W hraðhleðsla svo þú ert fljótur af stað aftur.

30 klst

Rafhlöðuending

78-87 Wh

Rafhlöðustærð

65W

Hraðhleðsla

Meira geymslurými og vinnsluminni

Gerðu meira af því sem þú elskar. 1TB innbyggt geymslurými sem gefur þér nóg pláss til þess að skapa og 32 GB vinnsluminni þýtur þú áfram á ofurhraða.
Intel® Core™ Ultra 7
NP940XHA-KG1DK
1TB
SSD
32GB
LPDDR5x RAM

Opnum Galaxy Book5 Pro | Book5 Pro 360

Skilmálar vegna kaupauka: Tab S10 Lite
Tab S10 Lite (SM-X400) fylgir með í kaupum á Galaxy Book6 Pro – 14″ Touch/U7-4xe/32G/1TB/WinPro (NP944XJG-KG4SE) og Galaxy Book6 Pro – 16″ Touch/U7-4xe/32G/1TB/WinPro (NP964XJG-KG4SE) hjá völdum söluaðilum. Kaupaukinn er grá Tab S10 Lite (SM-X400) áætlað virði 79.900 kr. Gildir við kaup hjá völdum söluaðilum á Íslandi á meðan birgðir endast. Einungis er hægt að sækja um einn kaupauka fyrir hvert keypt tæki, sem uppfyllir skilyrði kaupaukans. Áætlað virði miðast við áætlað smásöluverð á Íslandi í april 2026. Gildir við kaup á tímabilinu 15.04.2026-10.05.2026. Til að nýta sér tilboðið þarf að skrá kaupin á samsungmobile.is fyrir 25.05.2026.

Opnum Galaxy Book5 Pro | Book5 Pro 360