Stafræn velferð
Frelsi og friður
Eins mikilvægt og það er að hafa frelsi til að velja og stýra tækinu eins og hentar þér best snýst frelsi ekki bara um hvað þú getur gert með símanum þínum, heldur líka um frelsið til að velja hann frá. Við lifum á tímum þar sem athygli okkar er mikilvæg auðlind sem mikilsvert er að vernda. Við eigum að stjórna tækninni en tæknin ekki okkur.
Stafræn velferð
Símafriður
Við hvetjum til „símafriðar“ – hvort sem það er í skólastofunni, við matarborðið eða fyrir svefninn. Tilgangur tækni á að vera er einfalda og auðga líf okkar en ekki koma í stað raunverulegra mannlegra samskipta. Til þess að tryggja það þurfum við sjálf að vera meðvituð í allri umgengni okkar við síma og aðra tækni – einkum og sér í lagi samfélagsmiðla.
Stafræn velferð
Gagnleg verkfæri
Til að hjálpa þér og fjölskyldunni að finna rétta jafnvægið, bjóðum við upp á ýmis verkfæri sem vinna með þér, en ekki gegn þér:
Stafræn velferð
Google Family Link
Samsung Find
Balance Phone
Stafræn velferð
Kvíðakynslóðin
Í bók sinni The Anxious Generation (Kvíðakynslóðin) bendir sálfræðingurinn Jonathan Haidt á hvernig ofnotkun snjalltækja og sérstaklega samfélagsmiðla hefur haft áhrif á andlega heilsu ungs fólks. Við tökum þessi varnaðarorð alvarlega.
Viltu skipta yfir í frelsið?
Smart Switch
Einföld leið til að flytja gögnin þín yfir í frelsið.
Stafræn velferð
Gagnleg verkfæri
Til að hjálpa þér og fjölskyldunni að finna rétta jafnvægið, bjóðum við upp á ýmis verkfæri sem vinna með þér, en ekki gegn þér.
Gagnleg verkfæri
Google Family Link
Fullkomin stjórn fyrir foreldra. Þú getur sett skýra ramma um skjátíma barna, samþykkt öpp og tryggt að netið sé öruggur staður fyrir þau að kanna.
Stafræn velferð
Samsung Find
Öryggi og yfirsýn í rautíma. Sjáðu hvar barnið er statt á korti og fáðu sjálfvirkar tilkynningar þegar þau koma heim eða í skólann. Þetta tól hjálpar þér að fá yfirsín yfir börn/fjölskyldumeðlimi ásamt öll Galaxy-tækin þín á einum og sama stað.
Stafræn velferð
Láttu símann styðja við þínar venjur
Í stað þess að þurfa stöðugt að sýna sjálfsstjórn, getur þú látið símann hliðra til fyrir þér með Stillingum og venjum (e. Modes and Routines). Þar getur þú búið til regluverk sem breytir hegðun símans miðað við hvar þú ert eða hvað þú ert að gera