Veldu frelsi
Fyrir þig og alla hina.
Mynd: @gauithorsteinsson
Veldu frelsi
Samskipti án landamæra
Góð samskiptatækni á að brúa bil, en ekki útiloka fólk. Á meðan sum kerfi eru hönnuð til að loka fólk inni í einsleitum hópum, þá trúum við á opið umhverfi. Með Samsung færðu stýrikerfi sem opnar heiminn fyrir þér og gefur þér valfrelsi um hvaða öpp og hvaða þjónustu þú vilt nýta þér. – svo þú getir sagt það sem þér finnst við alla sem þér sýnist – á íslensku.
Einfalda útgáfu?
Nokkrar góðar ástæður fyrir því að velja frelsi SAMSUNG
Þitt tungumál, þitt frelsi
Allir símar og spjaldtölvur frá Samsung eru með íslensku notendaviðmóti. Ef íslenska skiptir þig máli geturðu valið að nota tækið með íslensku viðmóti.
Deildu með öllum
Deildu myndum og skjölum með hverjum sem er í gegnum Quick Share án hindrana. Samsung útilokar engan og gerir þér kleift að deila með þeim sem þér sýnist, hratt og örugglega.
Fullkomið öryggi með Knox
Knox er trygging Samsung fyrir öryggi en öruggt tæki veitir þér frelsi í leik og starfi.
Síminn þinn er tölvan þín
Með Samsung DeX geturðu tengt símann við hvaða skjá sem er og unnið eins og í tölvu. Frelsi til að vinna hvar sem er.
Þú stjórnar
Þú sem notandi velur hvaða öpp eru sjálfgefin, hvernig heimaskjárinn lítur út eða hvernig þú spilar tónlist í tækinu þínu. Þitt er valið, þitt er frelsið.
Tækni sem þjónar þér
Stafræn velferð er innbyggð. Tól sem hjálpa þér að leggja símann frá þér og njóta augnabliksins.
Viltu skipta yfir í frelsið?
Smart Switch
Einföld leið til að flytja gögnin þín yfir í frelsið.
QuickShare
Deildu með hverjum sem er
Lífið á sér stað í augnablikinu og þú átt að geta deilt því með þeim sem eru með þér, óháð því hvaða síma þeir eru með í vasanum. Quick Share býður upp á fjölbreyttar leiðir til að deila: þú getur deilt beint við tæki í nágrenninu, sent hlekk í skilaboðum eða búið til QR-kóða sem allir geta skannað og sótt efnið – án þess að þurfa að vera á sama stýrikerfi.
- Engar hindranir: Þú getur sent myndir, myndbönd og stórar skrár á augabragði.
- Virkar fyrir alla: Hvort sem viðtakandinn notar Android, iOS, Windows eða Chromebook, þá er deilingin einföld.
- Sveigjanleiki: Sendu beint í tæki í nágrenninu, búðu til hlekk eða notaðu QR-kóða sem hver sem er getur skannað.
- Hraði og öryggi: Deildu dýrmætum minningum hratt og örugglega án þess að pæla í stýrikerfum.
Hér geturðu séð hvenig QuickShare virkar
Veldu frelsi
Samskiptatækni á að tengja – ekki sundra
Við viljum stuðla að frelsi til að eiga samskipti við alla sem okkur sýnist. Sum stýrikerfi eru hönnuð sem „lokaðir garðar“ (e. walled gardens). Markmið þeirra er meðvitað að búa til tæknilega veggi sem gera það erfitt, takmarkað eða ómögulegt að eiga samskipti við þá sem eru „utan veggjanna“.
Tækið á ekki að ákveða við hverja þú getur talað
Margir þekkja dæmin: myndir sem verða óskýrar þegar þeim er deilt á milli kerfa, eða hópspjall er lokað öllum sem ekki eru með „rétta“ stýrikerfið, eða skilaboð sem breyta um lit til að merkja þá sem nota „rangt“ tæki. Hér er ekki um að ræða tæknilegar takmarkanir heldur er hér á ferðinni meðvituð stefna og meðvituð hönnun sem ætlað er að skapa félagslegan þrýsting í gegnum útilokun eða einangrun. Það teljum við ekki vera til fyrirmyndar.
Við viljum meina að þú sem notandi eigir að hafa valið en ekki að tækið eða stýrikerfið haldi þér innan tilbúnnar girðingar og stjórni við hverja þú getir átt samskipti. Með því að velja Samsung snjalltæki opnar þú heiminn þar sem þú nýtur frelsis:
- Raunverulegt frelsi
Með Samsung og opnum stöðlum eins og RCS og Quick Share, skiptir ekki máli hvaða merki er aftan á símanum hjá vini þínum eða samstarfsmanni. - Engin útilokun
Þú getur deilt hágæða myndum og stórum skrám með hverjum sem er, hvenær sem er. - Sveigjanleiki framar öllu
Á meðan sum kerfi reyna að loka þig inni, leggur Samsung áherslu á að vera opið og aðgengilegt. Okkar tækni talar við alla.
Snjallsíminn þinn á að vera brú til umheimsins, ekki girðing sem lokar þig af og heldur aftur af þér. Með því að velja Samsung velurðu kerfi sem virðir þarfir allra fyrir opin og óhindruð en um leið örugg samskipti.
Veldu frelsi
Frelsi og friður
Eins mikilvægt og það er að hafa frelsi til að velja og stýra tækinu eins og hentar þér best snýst frelsi ekki bara um hvað þú getur gert með símanum þínum, heldur líka um frelsið til að velja hann frá. Við lifum á tímum þar sem athygli okkar er mikilvæg auðlind sem mikilsvert er að vernda.
Við hvetjum til „símafriðar“ – hvort sem það er í skólastofunni, við matarborðið eða fyrir svefninn. Tilgangur tækni á að vera er einfalda og auðga líf okkar en koma ekki í stað raunverulegra mannlegra samskipta. Til þess að tryggja það þurfum við sjálf að vera meðvituð í allri umgengni okkar við síma og aðra tækni – einkum og sér í lagi samfélagsmiðla.
Nánar um stafræna velferð á samsungmobile.is/velferd