Jólagjöfin frá Samsung
Jólin eru fyrst og fremst tími gleði, friðar og samveru. Þar sem við njótum þess að vera saman með fjölskyldu og vinum. Hins vegar er óhætt að segja að gjafirnar spili oft stórt hlutverk í hátíðarhöldunum. Þess vegna höfum við safnað saman hugmyndum að jólagjöfum á alls konar verði. Eitthvað fyrir alla – og kannski sumar með kaupauka!
Nýr sími undir trénu í ár?
Það er fátt sem toppar spenninginn við það að fá glænýjan síma í jólagjöf. Þetta er gjöf sem er stútfull af upplifunum og tækifærum sem halda áfram að gleðja langt fram í tímann. Þess vegna höfum við tekið saman nokkra vinsæla valkosti til þess að hjálpa þér að velja rétta símann í jólapakkann.
Galaxy S25 Ultra
Ef það á aldeilis að dekra við einhvern um jólin þá býður Galaxy S25 Ultra upp á það allra besta. Gífurlega öflugur sími með risa stórum skjá, IP68 ryk- og vatnsvörn, fjórum myndavélum með brautryðjandi notkun á gervigreind og rafhlöðu sem endist lengur en þú. Gullfallegur sími sem tryggir háklassa ljósmyndir og virkni upp á tíu. Tilvalið fyrir þá sem hafa gaman af ljósmyndun eða vilja afl sem nýtist í bæði leik og starfi. Fram að Þorláksmessu fylgir í þokkabót 50″ Samsung sjónvarp í kaupauka.
Galaxy Z Fold7
Hó Hó Hó Samsung Galaxy S24 FE er kominn til byggða og hefur uppá að bjóða alla þá eiginleika sem skipta notendur mestu máli: Framúrskarandi 50 MP myndavél, bæði aðdráttar- og víðlinsa, endingargóð rafhlaða og frábær skjár. Allt það helsta pakkað inn í fágaða hönnun. Væri ekki tilvalið að skella á hann slaufu og undir tréð? Fram að Þorláksmessu fylgir í þokkabót 50″ Samsung sjónvarp í kaupauka.
Galaxy S25 Edge
Langar þig að gleðja einhvern með nýjum síma um jólin? Galaxy S25 Edge er einstaklega nettur snjallsími fyrir þá sem vilja glæsileika og afburða frammistöðu. Aðeins 5,85 mm þykkur og 163 g er S25 Edge nettasti ferðafélagi S25-línunnar.
Galaxy Z Flip7
Gjöfin sem mun standa upp úr í ár verður án efa Galaxy Z Flip7 – samlokusíminn sem hefur slegið í gegn síðustu ár. Hver vill ekki eiga samloku snjallsíma eins og Ice guys strákarnir. Z Flip7 er nettur sími sem passar vel í vasa og veski en er um leið í fullri stærð. Betri myndavél, stærri rafhlaða og sterkari lagnir en forveri sinn. Gullfallegur og töff sími.
Samsung Sessjón sem kemur þér í jólagírinn
Jóhanna Guðrún | Löngu liðnir dagar
Gefðu gjöf tónlistar
Heyrnartól eru frábær jólagjöf fyrir alla sem elska að hlusta á tónlist, hlaðvörp eða þá sem vilja geta fengið frið frá hávaða í umhverfinu. Galaxy Buds bjóða upp á framúrskarandi hljóð, mikil þægindi og glæsilega hönnun sem nýtast hvar og hvenær sem er. Gefðu gjöf tónlistar með Galaxy buds.
Galaxy Buds3 Pro
Gefðu gjöf tónlistar um jólin með Galaxy Buds3 Pro. Mögnuð heyrnartól fyrir þá sem vilja það allra besta. Heyrnartólin innihalda allt sem þú þarft til að heyra fullkomlega. Hægt er að stjórna hlustun algjörlega á heyrnatólunum sjálfum. Galaxy buds 3 pro tryggir gæða hlustunarupplifun hverju sinni og aðlagar hljóminn að hvaða umhverfi sem er.
Galaxy Buds3
Er tónlistarunnandi í fjölskyldunni? Eða mögulega einhver sem getur ekki sofnað án hljóðbókar? Þá eru Galaxy Buds3 kannski einmitt málið – glæsileg heyrnatól sem sitja vel í eyra og veita hágæða hljóm. Virk hjóðeinangrun (ANC) sér til þess að þú færð ávallt bestu upplifunina óháð umhverfishávaða. Hallaðu þér bara aftur og njóttu þess að hlusta.
Skyld' það vera Samsung úr?
Úti í jólahjólabæ hringir jólahjóla klukkan jólin inn. Þannig er það samkvæmt Sniglabandinu en hvað mun hringja inn þín jól? Verður það mögulega glænýtt snjallúr frá Samsung?
Galaxy Watch8
Galaxy Watch7 er jólagjöf sem nýtist dag og nótt. Öflugt úr með klassíska hönnun og auðvitað vatnshelt svo það hentar vel í öllum veðrum og vindum. Úrið veitir enn betri innsýn í heilsu, svefn og hreyfingu með aðstoð Galaxy AI. Fullkomin gjöf fyrir þá sem hafa gaman af hreyfingu og eru mikið á ferðinni.
Galaxy Watch 8 Classic
Tilvalin jólagjöf fyrir alla sem vilja fágun og glæsileika hefðbundins úrs með bestu snjalleiginleikum sem völ er á. Úrið er með títan umgjörð, safír gleri og 10 ATM vatnsvörn og þolir því flestar aðstæður. Frábært til að taka með upp á fjöll, í sjósund, í klifur eða hvaða ævintýri sem er.
Galaxy Fit3
Nett og einfalt úr frá Samsung sem væri fullkomið í jólapakkann. Galaxy Fit3 er létt og nett bluetooth snjallúr á frábæru verði. Frábært heilsuræktar úr sem mælir bæði hjartslátt og svefn. Notendavænt og hentar því langflestum.
Gleðileg jól
Jólasveinar eftir listamanninn Birgi Rafn Friðriksson teiknaðir með Galaxy S penna.